
Birkimelurinn er lykilleið fólks á milli Melanna og annars vegar Gamla Vesturbæjar norður Ljósvallagötu og hins vegar Miðborgarinnar austur um Hringbraut. Um alllangt skeið var götunni illa við haldið og árin 2016 var tillagan Ný gangstétt og hjólavísar á Birkimel valin meðal 11 verkefna í Vesturbænum sem hlutu brautargengi. Sumarið 2018 var svo göngu- og hjólastígurinn vestanmegin endurgerður víðari og götulýsing bætt.
Árið 2024 kom út þróunaráætlun Háskóla Íslands en þar er m.a. gert ráð fyrir hringstíg sem liggur vestur fyrir Sögu og um garð milli Sögu, Eddu, og Þjóðarbókhlöðunnar. Nokkrum árum fyrr, árið 2021, hafði Reykjavíkurborg gert samning við eigendur olíufélaganna um að bensínstöðin við Birkimel yrði lögð niður. Að endingu varð að lóðahafi bensínstöðvarlóðarinnar við Birkimel mætti breyta lóðinni svo á henni mætti byggja íbúðahúsnæði.
Vorið 2025 var í Skipulagsgátt auglýst tillaga um breytingu á deiliskipulagi þar sem lagt er til að lóðin breytist í íbúalóð með þjónustu á jarðhæð.

Eðlilega eru skiptar skoðanir á því hvort og hversu mikið megi byggja við Birkimel, en staðsetning lóðarinnar ofan í götunni kallar á að lóðin verði ekki hönnuð út frá lóðamörkum heldur verði svæðið mótað heildstætt.

Hópur Vesturbæinga hefur t.a.m. tekið sig saman um að mótmæla þessum framkvæmdum. Stjórn Íbúasamtaka Vesturbæjar hefur skorað á Reykjavíkurborg að tryggja að ekki verið farið í skipulag og framkvæmdir áður en svæðið verður skipulagt heildstætt.
Fyrir sveitarstjórnarkosningarnar vorið 2026 sendu Íbúasamtök Vesturbæjar fyrirspurn á framboðin þar sem spurt var:
- Styður framboðið núverandi skipulagsáform, eða mælir það gegn samþykkt þeirra?
- Styður framboðið þá hugmynd að fram fari heildarendurskoðun á skipulagi
svæðisins unna af óháðum fagaðilum, í samræmi við tillögur Minjastofnunar,
menntastofnanna á svæðinu og Íbúasamtaka Vesturbæjar (sjá bréf) - Ef svo er, hvernig sér framboðið fyrir sér að samráði við hagaðila — bæði stofnanir
og íbúa — verði hagað?
Öll framboðin svöruðu fyrirspurninni og má sjá svör þeirra hér og frétt hér á vefnum með samantekt og greiningu á svörunum.
Ítarefni
- Tillagan Gangstétt/hjólastígur við Birkimel í Betri Reykjavík 2016.
- Tillagan Betri gangstétt á Birkimel í Betri Reykjavík 2017.
- Birkimelur í nýjan búning – frétt um fyrirstandandi framkvæmdir. (2017.05.04.)
- Enginn bauð í umdeilda framkvæmd við Birkimel – frétt um framkvæmdir á Vísi.is (2017.09.05.)
- Birkimelur 1. Vefur um fyrirætlanir lóðarhafa.
- Þróunaráætlun Háskóla Íslands (gefin út í desember 2024).
- Áskorun stjórnar Íbúasamtaka Vesturbæjar til borgarstjórnar Reykjavíkur að fresta frekari vinnu við deiliskipulagstillöguna (2025.10.21.)
